Færsluflokkur: Lífstíll
29.3.2009 | 07:40
Hvað velur þú?
Mörgum mun koma það á óvart þegar þeir koma til himna og sjá hversu mikilvægt það er að gefa af sér ástúð og kærleika, hinar földu, óséðu athafnir sem skipta meira máli þegar til lendar lætur, en hlutirnir sem blasa við okkur á hverri stundu allan daginn.
Þetta er dagur vals.
Þetta er dagur áskorunar.
Þetta er dagurinn sem Ég segi til allra Minna barna:
Hversu langt nær kærleikur þinn?
Hversu langt hugsarðu til annarra?
Hversu mikið gefurðu af sjálfum þér?
Hversu tilbúinn ertu að láta af eigin áformum og því sem þú þarft að gera til að huga að öðrum sem þurfa á ást þinni og kærleika að halda?
Ég hef engin augu nema þín augu, engar varir nema þínar varir, engar hendur nema þínar hendur.
Mikið af þeirri ást og hlýju sem ég auðsýni öðrum fá aðeins að njóta sín í verkum og gjörðum annarra.
Mikið af kærleika Mínum og þægilegheitum verður best deilt með öðrum fyrir tilverknað annarra.
Kærleikur Minn endurspeglast best í þínum verkum.
Þýðandi: Guðbjörg Sigurðardóttir
Með leyfi Aurora Productions
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.3.2009 | 05:47
í morgunsárið...
Sjá mynd dagsins á blogginu mínu ásamt texta á Ensku sem mér finnst gott að styðjast við og íhuga þegar ég byrja nýjan og ferskan dag, næra hugann jákvæðum og hvetjandi hugsunum sem styrkja sálarþrekið á annasömum degi að þetta hjálpi og vilji einhver senda mér línu á bloggið mitt er það velkomið.
Með kærri kveðju,
Guðbjörg
I can endure for this minute whatever is happening to me,No matter how heave my heart is, or how dark the moment may be,If I can remain calm and quiet, with all my world crashing about me,Secure in the knowledge God loves me when everyone else seems to doubt me.If I can but keep on believing what I know in my heart to be true,That darkness will fade with the morning and that this will pass away, too.Then nothing in life can defeat me, for as long as this knowledge remains.I can suffer whatever is happening, for I know God will break al the chains.That are binding me tight in the darkness, and trying to fill me with fear.for there is not night without dawning and I know that my morning is near.
Höfundur ókunnur
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.3.2009 | 22:36
Keppnisskap...
Bensíngjöfin og bremsan.
Eftir Tom Hack
Ég hef ekki alltaf verið sá auðveldasti til að vinna með. Í raun þá hefur sumt fólk haft álíka mikinn áhuga á að vinna með mér eins og að eiga broddgölt fyrir gæludýr.
Hluti af vandamálinu var mitt mikla keppnisskap og ég skal gefa þér sýnishorn af því hvernig það gróf undan samskiptum mínum við vinnufélagana. Ég deildi stjórnunarábyrgð með orkumiklum samstarfsmanni. Paul var snöggur að hugsa, kvikur í hreyfingum, var mjög skipulagður og kom miklu í verk á einum degi en ég var hinsvegar hægari, varkárari og meira fyrir að greina hlutina. Ég var vanur að segja, "ég er bara með tvo gíra - hægt og afturábak". Þegar ég vann með Paul fannst mér ég alltaf vera skrefi á eftir og það æsti upp í mér samkeppnisandann. Ég ákvað fljótt að ég mundi gera betur en Paul á öllum sviðum. Ef hann ætlaði að mæta hálftíma fyrir í vinnuna til að ná smá forskoti á daginn þá ætlaði ég að mæta klukkutíma fyrr til að ná forskoti á hann. Ef að hann ætlaði að einbeita sér að ákveðnu vandamáli þá var ég búinn að stúdera það frá öllum mögulegum sjónarhornum. Nú þetta eyðilagði ávinninginn af því að vinna saman.
Ég bað fyrir þessu og Jesús gaf mér litla líkingu. Hann sagði mér að við værum eins og bíll og minnti mig á að bíllinn þarf bæði að hafa bremsur og bensíngjöf. Ef hann hefði bara bensíngjöf þá mundi hann lenda útaf í fyrsta skiptið sem hann kæmi í beygju og færi aðeins of hratt. Ef hann hefði bara bremsur þá kæmist hann aldrei neitt. Til þess að komast áfram og halda sig á veginum þarf hann bæði bensíngjöf og bremsur sem vinna saman í jafnvægi.
Hvað þetta þýddi var alveg ljóst fyrir mér. Í fyrsta lagi þá þurfti ég að gera mér grein fyrir því að það sem ég áleit vera persónulegan veikleika var í raun styrkur. Sú staðreynd að ég gekk hægar til dæmis hjálpaði okkur sem stjórnunarteymi til að vera heildsteyptara og að hugsa og biðja hlutina í gegn áður en við framkvæmdum þá. Í öðru lagi, í stað þess að sjá styrkleika annarra sem ógnun og fara í samkeppni við þá, þá þurfti ég að læra að leyfa öðrum að vinna að því sem þeir skörðuðu framúr í og reyna að nýta mína styrkleika til að styrkja þeirra en frekar.
Ánægjulegi endirinn er að ég breytti hugsunarhætti mínum og Paul og ég héldum áfram að vinna vel saman. Ég er aðeins reyndari núna og lífsreglan mín, "ekki samkeppni" hefur reynst mér vel í alls konar samböndum.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.2.2009 | 07:50
Leitið innri friðar...
Ég las neðangreinda frásögn um það að "vera kyrr" með öðrum orðum sálrænt jafnvægi þar sem átt er við innri frið og ró. Það er mín skoðun að slíkt hugarástand sé af andlegum toga spunnið og tilheyri guðdómleikanum. Það sé til æðri máttur, leiðari þessarar friðar sem hægt er að tileinka sér, hagnýta og virkja til að vinna gegn streitu. Það er mín reynsla að til þess að ná andlegri ró þurfum við að læra að slaka á af sál og líkama til að losa um álagið en til þess þarf ásetning og staðfestu að gefa sér tíma að okkar andlega þrek skipti okkur meira máli en nokkuð annað sem lífið hefur upp á að bjóða. Hin sönnu farsælu verðmæti sem í raun og veru skipta okkur mestu máli varandi það sem koma skal.
Guðbjörg Sigurðardóttir
Verið kyrrir.
Höfundur Virginia Brandt Berg
Verið kyrrir og viðurkennið að ég er Guð. (Sálmarnir 46:10) Drottinn notaði einu sinni þetta Biblíuvers til þess að leggja áherslu á lífsnauðsynlega lexíu sem og að sýna fram á getu sína til þess að veita sérstaka bráða leiðsögn þegar við hlustum á hann í bæn. Ég þurfti að ná sambandi við konu sem ég hafði ekki heimilisfangið hjá og mig bráðvantaði það. Ég var heltekin kvíða. Mér fannst eins og ég myndi molna í bita ef ég kæmi ekki skilaboðum til hennar. Þegar ég bað varðandi það hvað gera skyldi, kom til mín umorðuð setning úr Ritningunni: Vertu bara hljóð. Þegi þú og viðurkenndu að ég er Guð. Þegar ég settist niður, róaðist ég og bað Drottin um að koma í veg fyrir stórslys. Hann talaði til hjartans: Þú skalt aðeins skrifa á blað og fara með það í íbúðina sem hún bjó í áður. Kannski hefur hún ástæðu til þess að fara aftur á staðinn eða að einhver sem þekkir hana veit hvert hún flutti og sendir henni skilaboðin frá þér og segir henni að hafa samband við þig. Þannig að ég skrifaði skilaboðin og fór yfir í íbúðina að skilja þau eftir. Um leið og ég kom þangað með skilaboðin í hendinni, kom þá ekki manneskjan sem ég vildi ná sambandi við en gat ekki! Er ekki dásamlegt hvernig Guð getur leyst úr málum? Ég lærði þá að eins og segir í Guðs Orði styrkur minn er að vera kyrr (Jesaja 30:7) Í hinu brjálæðislega kapphlaupi sem nútímalíf er orðið að höfum við jafnvel enn meiri þörf fyrir hina guðdómlegu kyrrð, að baða sálu okkar í þögn. Aðeins þegar andi okkar og hugur er hljóður og kyrrlátur getum við kynnst Guði. Verið kyrrir og viðurkennið að ég er Guð. Hvernig leiddi kyrrðin til þess að ég viðurkenndi að hann er Guð? Það að hann skyldi svara bæninni á hátt sem er kraftaverk, sýndi fram á þann dásamlega sannleik að hann er Guð. Margt fólk er haldið þeirri villu að kyrrðin í Biblíuversinu eigi við einhvers konar hamda spennu, æfða sjálfsstjórn og að fólk geti kæft kvíða á einhvern hátt. Kannski er það þess megnugt en ef það getur það er það aðeins á yfirborðinu; hið innra er það sjóðandi vökvi. Það er ekki þannig ró sem við eigum við! Kyrrð Guðs er ekki aðeins skortur á virkni. Hún er ósvikin kyrrð andans sem leiðir til skýrrar hugsunar og í þeirri kyrrð kynnumst við vilja og áætlun Guðs. Ég þekki af eigin reynslu að guðdómleg kyrrð hlýst oft af erfiðleikum og prófraunum. Hvernig má það vera? Erfiðleikar og prófraunir yfirbuga sálina og þjáningar gera sálina hógværa. Ert þú að upplifa erfiða tíma einmitt núna? Þá skaltu vera hljóður og kyrr frammi fyrir Drottni og hann mun sýna þér hvernig vinna á sætleika úr þeim vanda. Hann mun kenna þér dásamlega lexíur sem dregnar eru af vandanum, en þú verður að vera hljóður. Það er í þeirri sætu, kyrru helgun sem hann getur talað til hjarta þíns. Hvað á hinn trúaði að gera á stundu myrkursins? Sitja kyrr og hlusta. Lát hann treysta í Drottins nafni og reiða sig á Guð sinn. Láta hann aðeins sitja kyrran eins og Ritningin segir vertu kyrr og hlustaðu. Það fyrsta sem gera skal er að gera ekkert, að standa kyrr. Það fer gegn mannlegu eðli en það er viturlegt. Orðtakið segir: Þegar þú ert skekinn, flýt þér eigi. Með öðrum orðum þegar þú veist ekki hvað gera skal skaltu ekki flýta þér í blindni að gera eitthvað í von um að allt reddist. Stundum hef ég anað út í andlega þoku og mig hefur langað svo mikið að gera eitthvað af eigin afli. Mér hefur fundist ég þurfa að greiða úr flæktum vírum eða finna lausn á vandamáli, að ég yrði að aðhafast eitthvað. Mannlegum mætti mínum fannst hann þurfa að flýta sér og sjá um vandamálið. En ég hef komist að því að þótt mannlegur máttur hjálpi eitthvað til er miklu betra að festa bátinn og láta hann rugga á leguplássinu um tíma og treysta Guði einfaldlega! Vertu kyrr og sjáðu hvað Guð vill gera. Það er þegar við erum hljóð og reiðum okkur á hann að hann getur starfað. Áhyggjur koma oft í veg fyrir að hann geri allt sem hann megnar. Ef við erum annars hugar og hjarta okkar haldið streitu, erum við ekki í þeirri stöðu að hann geti orðið okkur að liði. Friður Guðs þarf að róa hugi okkar og friða hjörtu okkar. Leggðu höndina í lófa Guðs og láttu hann leiða þig út í bjart sólskin elsku sinnar. Vertu kyrr. Láttu hann vinna fyrir þig. Verið ekki hugsjúkir um neitt, heldur gjörið í öllum hlutum óskir yðar kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð. með því að vera kyrrir frammi fyrir Guði og friður Guðs sem er æðri öllum skilningi mun varðveita hjörtu yðar í Kristi Jesú. (Filippíbréfið 4:6-7)
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.2.2009 | 09:28
Hin varanlegu gildi...
Til míns ástkæra vinar! Ég elska þig og dái. Það er allt of sumt. Það skiptir engu máli hvað þú hafir gert, ást mín er skilyrðislaus.
Ég þekki þann eilífa, lifandi anda sem býr innra með þér. Dvalarstaður þinn er jörðin, þar býrð þú og lifir þínu lífi, tekur þí
nar eigin ákvarðanir og reynir að fremsta megni að vera góður samfélagsþegn. Ég skil þetta vel því það þarf hafa fyrir lífinu, sjá fyrir sér og sínum. En þetta væri miklu auðveldara ef þú lærðir að tengjast Mér. Þótt þú haldir áfram að lifa, eldast og síðan deyir er andinn stöðuglega ungur. Hann deyr aldrei. Þín eiginlega persóna, þúið sem við við köllum það sem á sér stað í líma þínum, lifir að eilífu. Þess vegna er ekki gott að sækjast eftir efnislægum verðmætum fram yfir hin andlegu gæði því það mun koma sá dagur að við þurfum að skilja við þetta allt. Það sem ætti í raun og veru að skipta okkur mestu máli eru hin andlegu gæði eins og kærleikur, góðvild, miskunnsemi, skilningur og gjafmildi. Þetta er það sem
gefur lífi þínu gildi, hversu sterkur þú ert andlega, hinn eignlegi auður.Þegar að því kemur að þú kveður þennan heim, skipta andleg verðmæti mestu máli, hvernig þú hefur lifað og ko
mi
ð fram við aðra. Láttu gott af þér leiða. Sýndu kærleika í verki. Vertu umhyggjusamur. Elskaðu fjölskyldu þína. Láttu þér þykja vænt um vini þína. Vertu elskulegur við nágranna þína. Vertu vingjarnlegur við þá sem þú hittir. Vertu miskunnsamur, vingjarnlegur og samúðarfullur. Með því að miðla kærleikanum ertu að sýna öðrum hver ÉG er. Því ÉG, Guð, er kærleikurinn og ÉG elska þig. MIG langar að búa með þér að eilífu.Þegar þú kemur að leiðarlokum lífsins, þarftu að fá lykilinn að heimilinu MÍNU til að fá að komast inn á þann stað þar sem kærleikurinn ríkir. En þú þarft ekki að vinna fyrir lyklinum, heldur réttir bara út h
önd þína og ÉG afhendi þér hann strax. Lykillinn er sonur minn, Jesú. Ég rétti þér lykilinn og segi; ,,Þú mátt eiga hann af því ég elska þig.Það má líkja þessu við að ÉG sé að bjóða þér lykilinn að hvelfingu fjársóðar MÍNS og segi við þig: ,,Þú átt þetta vegna þess að ÉG elska þig. Með þessum lykli getur þú opnað hvelfinguna og fundið hana fulla af fjársjóði.Taktu við lyklinum. Lykillinn er aðgangur þinn að búa hjá MÉR að eilífu. Segðu einfaldlega: ,,Guð, ég vil taka við lífslyklinum þínum. Ég tek á móti syni þínum Jesú, sem er lykillinn. Ég tek á móti lyklinum, ég vil fá hann. Þessi lykill mun þá verða þinn að eilífu.Ég elska þig, þú ert barnið MITT og ÉG gef þér lykilinn að sjóði MÍNUM, l
ykilinn sem gerir þér kleift að lifa að eilífu. Þú átt hann ef þú tekur við honum.Með Kærleikskveðju,
þinn himneski Faðir
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.2.2009 | 12:10
Dagsljóminn...
Krafturinn á bak við guðdómleikann.
Það er einhver til staðar sem skilur þig, hugsanir þínar, tilfinningar, gleði og sorgir og vill taka þátt í þinni innri baráttu, löngunum og vonum.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.2.2009 | 18:33
Kærleikur í verki...
Það eru til margar leiðir sem hægt er að sýna öðrum elskusemi og jákvæð viðhorf. Það er hægt að gefa frá sér hlýja kveðju í staðinn fyrir kuldalegt viðmót. Gefðu þér tíma til að svara spurningum annarra, þolinmóður og hreinskilinn í stað þess að flýta sér stressfullur á sífeldum þeytingi án þess að láta sig varða um tilfinningar annarra. Það er svo margt sem hægt er að gera til að láta öðrum líða vel í návist þinni, að þeim finnist þeir skipta þig máli. Gefðu þér tíma til að tala við þá í stað þess að vera alltaf gera eitthvað svo mikilvægt að það megi ekki bíða. Láttu þig virka jákvætt á aðra, hlýr og notalegur í viðmóti, þolinmóður og alltaf reiðubúinn að fyrirgefa misbresti þeirra, mannlega þáttinn í okkur öllum sem við fæðumst með og þurfum sífellt að takast á við. Gefðu öðrum af tíma þínum með því staldra við og hlusta á þá, tala um hlutina og létta af sér. Réttu öðrum hjálparhönd og vertu tillitssamur í fari og framkomu! Allt þetta Kærleikurinn að verki.
Texti þýddur úr Ensku.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.1.2009 | 07:44
Morgunþankar...
"Mistök kenna okkur meira en velgengni. Þau kenna okkur visku og auðmýkt, tvær auðlindir sem vert er að sækjast eftir og virkja." Vegur til farsældar
En til þess þarf hugrekki og dirfsku að þora að klífa tindinn og taka ákvarðanir þrátt fyrir gagnrýni og mótlæti. Stórhuginn heldur ótrauður áfram og lætur ekki haggast þrátt fyrir mótbyrinn, því hann býr yfir innra öryggi og getu sem hann hefur öðlast við þá dýrmætu reynslu að takast á við erfið mál og láta ekki bugast. Allt veltur þetta á viðhorfunum okkar, hvernig við bregðumst við hlutunum og tökum á þeim, þar á meðal litlu ákvörðunum sem við stöndum frammi fyrir daginn út og daginn inn allt lífið út. Þetta getur verið erfið lífsreynsla en þegar uppi er staðið og við stöndum frammi fyrir stórum ákvörðunum reynast þær okkur auðveldur leikur. Við verðum að hafa framtíðarsýn til að drífa okkur áfram í gegnum erfðina tíma framundan, vera jákvæð í viðmóti við aðra og deila með okkur gleði því það muni birta upp um síðir. Lífið er ekki einungis dans á rósum, það hefur líka þyrna.
Guðbjörg Sigurðardóttir
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.1.2009 | 21:08
Kjöroðr síðustu daga...Vegur til farsældar
Svolítill kærleiksvottur getur skipt miklu máli.
Vera má að kærleiksverk og vinarþel breyti engu um rás sögunnar en breyti það lífi fólks til hins betra skiptir það miklu máli.
Komdu til dyranna eins og þú ert klæddur. Fólk metur þig meira fyrir heiðarleikann.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.1.2009 | 10:49
Viðhorf...hvernig við lítum á hlutina...
Úr hverju ertu gerð?
Ung kona fór að hitta móður sína og sagði henni frá öllum örðugleikum sínum. Lífið var erfitt og hana langaði til að gefast upp. Það virtist sem í hvert skipti sem eitt vandamál hafði verið leyst kom óðar annað í þess stað. Hún var orðin þreytt á stöðugri baráttu.
Móðirin fór með hana út í eldhús og fyllti þrjá potta með vatni. Í einn pott setti hún gulrót, í annan pottinn setti hún egg og í þriðja pottinn setti hún malaðar kaffibaunir. Hún kveikti á eldavélinni og stillti á suðu án þess að segja orð.Tuttugu mínútum síðar veiddi hún upp gulrótina og setti hana í skál. Hún tók eggið og setti það í aðra skál. Síðan hellti hún kaffinu í síu og yfir í bolla. Síðan sneri hún sér að dótturinni og spurði: Hvað sérðu?Gulrót, egg og kaffi, svaraði unga konan.Komdu við gulrótina, sagði móðirin. Dóttirin reyndi að taka hana upp en hún fór í sundur við snertinguna. Hún hafði breyst í mauk.Núna eggið, sagði móðirin.Dóttirin braut eggið á brún skálarinnar, fletti skurninni af og sagði að eggið væri harðsoðið.Nú skaltu reyna kaffið.Dóttirin brosti og lyfti bollanum að munninum og andaði að sér ilminum og brosti jafnvel breiðar eftir fyrsta sopann. Kaffið var bragðmikið og hafði fyllingu.Hvað viltu fara með þessu, mamma? spurði unga konan.Aðalatriðið er að gulrótin, eggið og kaffið stóðu öll frammi fyrir sama mótlæti sjóðandi vatni en hvert um sig brást ólíkt við. Gulrótin kom hörð sterk og ósveigjanleg til leiks en varð veikbyggð og molnaði. Eggið hafði verið brothætt en eftir að hafa verið í sjóðandi vatninu, hertist það. Það var öðruvísi með kaffibaunirnar. Þegar þær voru í vatninu breyttu þær því. Hvert þessara fyrirbæra ert þú? spurði móðirin. Hvernig bregstu við þegar mótlæti knýr dyra? Ertu gulrót, egg eða kaffibaun? Úr hverju ertu gerð?Eftir Flor CordobaFjögurra ára sonur minn er með Legóæði. Kannski er það aldurinn, eða kannski sú staðreynd að hann er listfengur og elskar að byggja en það líður ekki sá dagur að ég komi ekki að honum byggjandi eitthvað með Legóinu. Stundum sest ég hjá honum og byggi líka. Mér finnst mikið koma til bíla hans og geimskipa og annarra hluta, svo að ég sætti mig við að þurfa að leita að týndum litlum kubbum um allt hús, næstum því á hverjum degi.Dag einn kom hann hlaupandi til þess að sýna mér nýtt geimskip sem hann hafði byggt og rakst af slysni á hurðarstaf með það. Vesalings litla geimskipið tvístraðist í þúsund stykki að því er virtist og þau fóru út um allt yfir gólfið og undir borð, stóla og sófa og alla aðra torsótta staði í herberginu.Það mátti lesa algera skelfingu úr andliti Ricardos. Ég reyndi að hugga hann. Þetta er allt í lagi. Nú geturðu byggt annað geimskip og ég er viss um að það verði enn betra. Ekki láta hugfallast. Tíndu bara saman kubbana og byggðu nýtt geimskip. En aumingja Ricardo var svo hnugginn að hann sagðist ekki ætla að reyna aftur. Hann tíndi hægt og rólega saman kubbana og ætlaði að láta þá á sinn stað.Nokkrum mínútum síðar kom hann hlaupandi aftur með glænýtt geimskip. Mamma, þú hafðir rétt fyrir þér, sagði hann. Þetta er miklu betra geimskip en hitt geimskipið!Ég var svo stolt af litla drengnum mínum og atvikið kenndi mér lexíu. Hversu oft hef ég ekki reynt að byggja upp draum en hann hefur síðan brotnað í þúsund mola! En í hvert skipti var Jesús til staðar, segjandi mér að láta ekki hugfallast, heldur að byrja að byggja upp á nýtt. Að tína saman stykkin og byrja uppbyggingu aftur er oft jafnvel erfiðara en að byrja í fyrsta skipti. En með trú lítils barns eru allir hlutir jafnvel enn ánægjulegri hlutir mögulegir.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Framtíðarsýn
Nýjustu færslur
- 24.12.2019 Einstök gjöf...
- 26.10.2019 Að hrífast af fegurð veitir varanlega gleði og innri frið sem...
- 22.4.2019 Gleðilega páska til allra sem lesa þetta...
- 5.3.2019 Gagnrýni og framför
- 2.3.2019 Innlegg inn í daginn
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Ferðalög
- Fjármál
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Lífstíll
- ljóð
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúarbrögð
- Trúin og lífið
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tenglar
http://www.fanstory.com/sarahice
- Fanstory Ljóð eftir mig á ensku ásamt umsögnum
activatedeurope.org
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar