Færsluflokkur: Ferðalög

Endurhæfing á hestbaki! Reiðmennska í nýju ljósi...

Mig langar að geta þróað sérstaka endurhæfingu á hestbaki fyrir fólk með heilsubrest á einhvern hátt sem spilar inn í bæði andlega og líkamlega heilsu en skortir fjármagn til að koma verkefninu áfram án liðsafla annarra eða stuðnings, sjálf að berjast við langvarandi taugasjúkdóm en margs er til að vinna, hugsjón sem ég vildi sjá verða að veruleika fyrr en ekki seinna.

Er með hesthús á höfuðborgarsvæðinu þar sem ég og maðurinn minn erum með hestana okkar sem við þjálfum til reiðar fyrir okkur sjálf og þá sem vilja nota þetta einstaka tækifæri til að kynnast hestum, þjálfa reiðmennsku eða einfaldlega taka þátt í henni á einhvern hátt, njóta nærveru hestanna og friðarins sem þeim fylgja sem alkunnugt er á meðal hestfólks losar um streitu, hvílir hugann og hressir sálina. 

Gerum reiðmennskuna að jákvæðu afli í hugum fólks yfirleitt til að hressa upp á lífið og bæta lífsgæði þeirra sem berjast við erfiða sjúkdóma bæði andlega og líkamlega. Já, göngum til góðs með hagnýta reiðmennsku í fararbroddi og sjáum hvað hægt er að skapa og koma til leiðar samhent og einhuga.

 Vilji einhverjir sýna verkefninu áhuga, hringið í síma 8208408 eða sendið tölvupóst til gb@fjölskyldan.org


Brot úr mínu lífi...úr fjarlægu landi!

Glitrandi sandur, minning sem lifir!

Mig langar að segja frá einu sérkennilegu atviki í lífi mínu sem minnir mig svo mikið á jólin, ljósadýrð þeirra í myrkri skammdegisins. Ég var stödd á sjávarströndu í Austur-Asíu, nánar tiltekið í portúgölsku Macau sem nú tilheyrir Kína, með fjölskyldu minni, eiginmanni og tveimur sonum. Það var komið kvöld en eins og við vitum myrkrar miklu fyrr á þessum slóðum en við eigum að venjast hér á norðurhjaranum. Þegar sólin sest síðla dags eða eins og við köllum þar kvöld, skellur myrkrið á fyrirvaralaust í öllu sínu veldi og þú finnur þig allt í einu í nýjum heimi við gjörbreyttar aðstæður. Trén hafa tekið á sig nýja mynd og allt sem þú heyrir og upplifir í kringum þig hefur breyst í einni svipan og það er eins og ný sköpun hafi gerst og dýrð Guðs sé að verki, raunveruleg og lifandi. 

Það var komið kvöld, ég hljóp í flæðamálinu, volgur sjórinn lék um fætur mínar og ökkla, svartur sandurinn þyrlaðist upp við hreyfinguna og gaf af sér glitrandi himneskt ljós sem minnti mig á dýrð jólanna í skammdeginu hér á Íslandi, ljós sem skín í myrkri. Hið eilífa ljós, Jesú!

Frásögn:Guðbjörg Sgiurðardóttir 


Um bloggið

Framtíðarsýn

Höfundur

Guðbjörg Fortune Sigurðardóttir
Guðbjörg Fortune Sigurðardóttir

Ég lít á góðar bækur sem lifandi fjársjóð fullar af speki og góðum ráðum sem hægt er að tileinka sér og fara eftir en til þess þarf kraft, reynslu, andagift og stöðuglyndi ef vel á að fara.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Chistmas light 2019
  • Chistmas light 2019
  • Chistmas light 2019
  • Chistmas light 2019
  • 0W4A4hTiRwKAIUGIY1QvRA thumb 1ba6

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband