Færsluflokkur: Dægurmál

Svipbrigði þín eru þitt auglýsingaskilti...

Screen Shot 2012-01-14 at 22.50.3415. janúar

Svipbrigði þín eru þitt auglýsingaskilti við þjóðveg lífsins. Þau eru það fyrsta sem fólk sér og þín öflugasta auglýsing.

 


Vegur til farsældar 3

Vegur til farsældar 3 - 6. apríl 10

Það er list að geta hlustað á aðra og setja sig í þeirra spor, hlúa að þeim þrátt fyrir annríki dagsins. Virða þá og sýna tillitssemi, hlýju og kærleika er dýrmæt stund sem margborgar sig og skilar sér alltaf til baka. Hin sanna góða viska, verðmætari en hið dýrasta gull.

Höf: Guðbjörg Sigurðardóttir 


Morgunþankar...

IMG_2538"Mistök kenna okkur meira en velgengni. Þau kenna okkur visku og auðmýkt, tvær auðlindir sem vert er að sækjast eftir og virkja." Vegur til farsældar

En til þess þarf hugrekki og dirfsku að þora að klífa tindinn og taka ákvarðanir þrátt fyrir gagnrýni og mótlæti. Stórhuginn heldur ótrauður áfram og lætur ekki haggast þrátt fyrir mótbyrinn, því hann býr yfir innra öryggi og getu sem hann hefur öðlast við þá dýrmætu reynslu að takast á við erfið mál og láta ekki bugast. Allt veltur þetta á viðhorfunum okkar, hvernig við bregðumst við hlutunum og tökum á þeim, þar á meðal litlu ákvörðunum sem við stöndum frammi fyrir daginn út og daginn inn allt lífið út. Þetta getur verið erfið lífsreynsla en þegar uppi er staðið og við stöndum frammi fyrir stórum ákvörðunum reynast þær okkur auðveldur leikur. Við verðum að hafa framtíðarsýn til að drífa okkur áfram í gegnum erfðina tíma framundan, vera jákvæð í viðmóti við aðra og deila með okkur gleði því það muni birta upp um síðir. Lífið er ekki einungis dans á rósum, það hefur líka þyrna. 

Guðbjörg Sigurðardóttir 


Um bloggið

Framtíðarsýn

Höfundur

Guðbjörg Fortune Sigurðardóttir
Guðbjörg Fortune Sigurðardóttir

Ég lít á góðar bækur sem lifandi fjársjóð fullar af speki og góðum ráðum sem hægt er að tileinka sér og fara eftir en til þess þarf kraft, reynslu, andagift og stöðuglyndi ef vel á að fara.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Chistmas light 2019
  • Chistmas light 2019
  • Chistmas light 2019
  • Chistmas light 2019
  • 0W4A4hTiRwKAIUGIY1QvRA thumb 1ba6

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband