Færsluflokkur: Vefurinn

Orð dagsins...

IMG_2538

Það finnst enginn Jesú á krossinum! Hann er löngu stiginn niður af honum! Það finnst enginn Kristur í gröfinni heldur, því Hann er lifandi í hjörtum okkar; Hann lifir innra með okkur! Hann reis upp til sigurs, gleði og frjálsræðis þar sem dauðinn nær ekki lengur til okkar og leysti okkur undan oki syndarinnar og þeirri hræðilegu kvöl að þurfa að deyja án þess að þekkja Guð. Allt þetta tók Hann á sig okkur vegna, því til þess kom Hann í heiminn. Það var Hans hlutverk...

   


 


Mynd dagsins og páskagullkorn...

28-1.jpg

Svartasta myrkrið skellur á rétt fyrir dögun; dýpsta örvæntingin verður rétt áður en sáluhjálpin berst.

Páskagullkorn

Það er ekki hægt að prédika páskaboðskapinn í þátíð. Hann er boðskapur sem á við í dag og um ókomna tíð. Hann er boðskapur Guðs sem verður að enduróma í hjörtum okkar allt lífið. Frank D. Getty 

Látum sigurhrópið sem barst okkur á fyrstu páskahátíðinni hljóma í hjörtum okkar á ný! Helvíti skelfur yfir fögnuði okkar, því fagnaðarópið ber þess vott að við erum frjáls. Höfundur óþekktur 

 


Brot úr mínum degi

Margir spurðu eftir Vegi til farsældar, dagatalinu sem skipt hefur stöpum í lífi margra síðustu árin og ekki síst síðustu misserin núna fyrir jólin. Ég átti langt samtal við konu sem hringdi í mig og töluðum við lengi saman og ræddum hugmyndir um andlega lífið, trú og þau vísindalegu gildi sem í henni felast. Sagði hún bókina mjög góða sem margir vildu eiga og geta gefið. 

Um bloggið

Framtíðarsýn

Höfundur

Guðbjörg Fortune Sigurðardóttir
Guðbjörg Fortune Sigurðardóttir

Ég lít á góðar bækur sem lifandi fjársjóð fullar af speki og góðum ráðum sem hægt er að tileinka sér og fara eftir en til þess þarf kraft, reynslu, andagift og stöðuglyndi ef vel á að fara.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Chistmas light 2019
  • Chistmas light 2019
  • Chistmas light 2019
  • Chistmas light 2019
  • 0W4A4hTiRwKAIUGIY1QvRA thumb 1ba6

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 1134

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband